Flotbryggja við rampinn hjá Siglingaklúbbnum

Flotbryggja við rampinn hjá Siglingaklúbbnum

Setja ætti flotbryggju hjá rampinum við Ránargrund 2. Fulltrúi í rannsóknanefnd sagði að öryggi við rampinn og höfnina væri ábótavant og úrbóta þörf. Flotbryggja mundi auka öryggi allra sem nota svæðið. Öryggisbátur væri þá staðsettur við bryggjuna í stað þess að það þurfi bíl til að bakka honum yfir göngustíginn og niður rampinn í hvert sinn. Búið er að endurvekja Siglingaklúbbinn þá gæti Garðabær gert samning við klúbbinn um, þrif, viðhald, eftirlit og geymslu á flotbryggjunni.

Points

Setja ætti flotbryggju meðfram rampinum við Ránargrund 2 þar sem Siglingaklúbburinn Vogur er með aðstöðu. Flotbryggja mundi stórauka öryggið fyrir Siglingaklúbbinn og aðra sem stunda útivist á Arnarnesvoginum en einnig mundi flotbryggjan auka öryggi gangandi og hjólandi þar sem ekki þyrfti að fara eins oft með þunga báta yfir göngustíginn. Öryggisbátur gæti verið staðsettur við bryggjuna allt sumarið í stað þess að það þurfi bíl til að bakka honum niður rampinn í hvert sinn.

Til eru flotbryggjur sem eru eins og fljótandi legókubbar og hægt að púsla þeim saman á mismunandi hátt. Svona flotbryggjur gætu hentað vel við hliðina á rampinum. Auðvelt væri að taka slíka flotbryggju upp á haustinn og setja aftur niður að voru svo hún skemmist ekki yfir veturinn ef það frís í Arnarnesvoginum. Og nú þegar búið er að endurvekja Siglingaklúbbinn þá gæti Garðabær gert samning við klúbbinn um, þrif, viðhald, eftirlit og geymslu á flotbryggjunni.

Rampurinn sjálfur er 80 m að lengd en flotbryggjan þyrfti mögulega ekki að vera nema 65-70 m löng. Miðað við 50x50x40 cm kubba bryggju frá MarineFloor sem Köfunarþjónustan er með umboð fyrir þá mundi bryggja sem er 3 kubbar á breidd eða 1,5 m breið að kosta um 5 milljónir. 4 kubba breið flotbryggja mundi tryggja betra aðgengi og öryggi en væri eitthvað dýrari. Svo þarf einhverjar festingar við land, stiga á einum eða fleiri stöðum og björgunarhringi.

Helstu kostir flotbryggju við rampinn • Aukið öryggi á sjó og í landi: Minni þörf er á að aka með þunga báta og kerrur yfir fjölfarna göngu- og hjólastíg. • Geymsla öryggisbáts: Öryggisbáturinn gæti flotnað við bryggjuna allt sumarið í stað þess að þurfa að keyra hann niður rampinn í hvert skipti sem farið er á vatnið. • Sveigjanleiki einingabryggja: Hægt er að nota einingakerfi sem auðvelt er að taka upp á haustin til að forðast skemmdir ef ís lögðu

MarineFloor bryggja sem er 3 kubba breið

Þessar MarineFloor bryggjur geta lagað sig stöndinn þegar flæðir frá

Eftir atvik í haust þar sem ungir siglingamenn festi mastur á báti í botni Arnarnesvogar þá hafði fulltrúi í rannsóknanefnd sjóslysa að orði að öryggi við rampinn og höfnina væri ekki nægilega gott og úrbóta þörf. Svona flotbryggja mundi á einfaldan hátt auka öryggi allra sem nota svæðið.

Auðvelt að stafla og geyma svona kubba bryggju á landi

Dæmi um svona flotbryggju á Íslandi enda er Köfunarþjónustan umboðsaðili MarineFloor

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information